miðvikudagur, nóvember 23

Pannt verða skógarbjörn!!

Í þessu lífi er ég kona. Í næsta lífi vil ég verða skógarbjörn!

Ef þú ert björn færðu að leggjast í dvala, þú gerir ekkert annað en að sofa í sex mánuði. Ég gæti lifað með því!

Áður en þú leggst í dvala áttu að troða þig út af mat þangað til þú stendur á gati. Ég gæti líka lifað með því!

Ef þú ert kvenkynsbjörn þá fæðirðu ungana þína (sem eru á stærð við hnetur) á meðan þú sefur og þegar þú vaknar ertu komin með stálpuð sjálfbjarga bangsakrútt. Ég gæti sko alveg lifað með því!

Ef þú ert bjarnarmamma þá vita allir að þér er alvara! Þú abbast upp á þá sem abbast upp á ungana þína og ef ungarnir þínir eru eitthvað óþægir, þá abbastu upp á þá líka. Ég gæti lifað með þessu!

Ef þú ert björn þá BÝST maki þinn við því að þú vaknir urrandi og hann REIKNAR MEÐ því að þú sért loðin á leggjunum og með hátt hlutfall líkamsfitu!

Jebb, ég ætla að verða skógarbjörn

3 Comments:

At 09:38, Anonymous Nafnlaus said...

Hið ljúfa líf.. HVað segiru má ég vera systir þín? :o)

 
At 09:39, Anonymous Nafnlaus said...

Þú hefur nú komist í tæri við skógarbirnir.... tja í Þrastarskógi var það ekki!?!?!?!

 
At 16:11, Anonymous Nafnlaus said...

Ég vil líka vera skógarbjörn...

 

Skrifa ummæli

<< Home