fimmtudagur, desember 2

Baráttan um borðin

"Náði" sagði ég og kastaði töskunni minni með tölvunni minni innanborðs á borðið "ætlar þú að nota allt borðið" sagði greyjið menntaskólastúlkan með aumkunaraugum "JÁ" og byrjaði að dreifa mér um borðið.

Hvað er eiginlega málið!?!
var mætt fyrir utan bókhlöðuna kl 8.15 taldi mig vera á góðum tíma til að fara í biðröð og alveg búin að ákveða hvaða boðri ég ætlaði að ná. en þá var verið að hleypa inn um leið og ég kom og á 10 mínútum fylltist þjóðarbókhlaðan! Út um allt voru Háskólanemar á vergangi að leita sér að gólfplássi til að lesa bókina sína!

Hvað er að verða um "hlöðuna okkar", fyrst er okkur hent út í kuldan með því að skerða opnunartíma, stúdentaráðið tókst nú samt að torða okkur inn aftur, en nú eru þessi meindýr komin um allt og neyða "okkur" til að sitja á gólfinu!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home