sunnudagur, október 30

Sko mig!

Þrátt fyrir nokkur gylliboð, tókst mér að halda loforð mitt um djamm-/áfengislausa helgi (ja, fyrir utan 1.5 hvítvínsglas)

Föstudagskvöldið fór í smá ritgerðarskrif og rosalega geymsluskipulagningu. Alveg er það merkilegt hvað maður vill halda upp á tilgangslitla hluti, eins og bilaða gsm síma eða gamlar stílabækur!

Nú í kvöld blés ég til spilakvölds. Það var mjög gaman, enda elska ég að spila og spilaði ég mig í gegnum æskuárin. Skemmtilegur félagsskapur og nokkuð góð framistaða að minni hálfu.

2 Comments:

At 16:22, Blogger Ásdís said...

já bíddu bíddu .. hvað heitir aftur framlimur á kval ??? en afturlimur á sel ??? en hvað heitir totan neðst á eyranu.. Oddu Guttormsson... Denni jóns

 
At 18:32, Blogger Erna María said...

hvað var eiginlega málið með þessar spurningar?

 

Skrifa ummæli

<< Home